Klæðskerasaumuð föt á konur
Það er reginmunur á klæðskerasaumuðum fötum fyrir konur og karla. Það kallar á ólikar hugmyndir í vali á efnum og stíl, ólika starfsreynslu af sniðagerð og aðrar kröfur um verkkunnáttu, svo eitthvað sé nefnt. Hafi rithöfundurinn og sálfræðingurinn John Gray haft rétt fyrir sér um að karlar séu frá Mars en konur frá Venus er auðskilið að kvenlíkaminn hefur gjörólíkar þarfir en líkami karlmanns. Fatahönnuðir okkar geta teiknað skissur af hvers konar fatastíl sem þú vilt. Þér er velkomið að koma með úrklippur úr blöðum, þínar eigin skissur (teikningar) eða fatnað sem þú vilt láta sauma eftir. Við eigum safn nýtísku blaða og bóka um fatastíl sem þú getur valið þinn stíl eftir. Vanir fatahönnuðir okkar geta komið með tillögur um hvaða litir fara vel við húðlit þinn og augnlit. Við getum ráðlagt þér hvers konar fatastíll hæfir vaxtalagi þínu og hvers konar efni passa vel við hann, og fleira mætti telja. Þú þarft aðeins að láta okkur vita hvað þú vilt, hvort þú vilt íhaldssaman stíl, klassískan eða nýtískulegan og smartan. Því betur sem við þekkjum þig því betur getum við látið fötin passa þér. Öll verkefni okkar eru sniðin og klippt á vinnustofunni svo hægt sé að hafa handbragðið sem best.
Við getum gert nánast hvernig fatnað sem er en við erum lagnari við flíkur úr ofnum efnum en prjónaefni. Við sérhæfum okkur í klæðskerasaumuðum kápum, drögtum, jökkum, buxum, pilsum, blússum, kjólum og kvöldkjólum.
|